Cameron vill kafa ofan í Avatar 2 og 3

8. febrúar '12 12:54 Cameron vill kafa ofan í Avatar 2 og 3

James Cameron er búinn að vera á fullu við að ganga frá þrívíddarútgáfu af óskarsverðlaunamynd sinni Titanic sem hann sló flest met með þegar hún kom fyrst í bíó 1997. Aðdáendur þessa snjalla mikilmennskubrjálæðings bíða þess nú að hann stígi fram til þess að kynna þrívíða sjóslysið og gera sér vonir um að þá verði hægt að veiða eitthvað upp úr honum um áform hans um Avatar 2 og 3.

Þótt Cameron hafi lítið látið frá sér fara um Avatar-framhaldsmyndirnar hefur Sigourney Weaver nú varpað nokkru ljósi á hvað vakir fyrir Cameron. Persóna Weaver lét að vísu lífið í Avatar en þar sem hún er með allt á hreinu eru góðar líkur á því að hún muni snúa aftur með einhverju móti í framhaldsmyndunum.

Weaver hefur einnig upplýst að Cameron vilji ekki hefja tökur á framahldsmyndunum fyrr en að hann verður búinn að fá sérsmíðaðan kafbát til afnota. Ekki liggur fyrir hvort hann finni sig knúinn til þess að komast í kaf í hugmyndavinnunni eða hvort hann hyggist nota tækið í tökurnar sjálfar. Hann er hins vegar greinilega undir áhrifum frá sjálfum sér þar sem hann er ekki ókunnugur kafbátum við kvikmyndagerð og notaði meðal annars slík tól við gerð Titanic. Grúsk hans í kringum Titanic hefur sjálfsagt líka eitthvað með það að gera að hann vill láta Avatar 2 og 3 gerast að einhverju leyti neðansjávar.

 

Þórarinn Þórarinsson

Engin ummæli hafa verið skráð

Svarthöfði 2011 - Allur réttur áskilinn | svarthofdi (hjá) svarthofdi.is | Um Svarthöfða