Sylvester Stallone hefur nú í tvígang hóað saman misferskum og hálf útrbunnum harðjöxlum undir merkjum The Expendables. Í eðlilegu framhaldi af vinsældum The Expendables og The Expendables 2 eru komnar fram hugmyndir um að gera konumynd eftir sömu formúlu.
Simon West, leikstjóri The Expendables 2, hefur þegar lýst áhuga sínum á því að gera einhvers konar Expenda-Belles mynd og hefur nefnt Angelinu Jolie og Helen Mirren sem leikkonur sem hann gæti hugsað sér í hasarveislu af því tagi.
West er ekki einn um þessa hugmynd og fregnir herma að nú sé þegar byrjað að huga að konuhasarmynd sem að vísu mun eiga sér stað í öðrum heimi en harkan og töffið verði þó engu minni en hjá körlunum í The Expendables.
Og ekki er heldur skortur á konum til þess að fylla hóp sem jafnast á við gamalmennagengi Stallones en auk Jolie og Mirren hafa dömur á borð við Cameron Diaz, Milla Jovovich, Uma Thurman, Charlize Theron, Michelle Rodriguez, Jennifer Garner, Kate Beckinsale og Scarlett Johansson verið nefndar sem góðir kostir í slíka mynd. Þá gætu nýliðarnir Paula Patton og Gina Carano komið sterkar inn.
Svarthöfði stingur einnig upp á Geenu Davis sem lék eitt magnaðasta hörkukvenndi síðustu ára, Sam/Charlie, í The Long Kiss Goodnight. Þá er auðvitað ekki hægt að ræða um harðhausamynd með konum í aðalhlutverkum án þess að Sigourney Weaver sé ofarlega á blaði en hún á heiðurinn af mesta kvenhörkutóli bandarískrar kvikmyndasögu, geimverubananum Ellen Ripley. Hún væri í raun ígildi Stallones og Schwarzeneggers í konu Expendables.