Aldurstakmark Prometheus fær að halda sér4. maí '12 12:02
Þeir sem óttast að Alien-forleikur Ridleys Scotts, Prometheus, verði klipptur til með það fyrir augum að stækka markhóp myndarinnar ættu að geta andað rólega þar sem Tom Rothman, æðstráðandi hjá 20th Century Fox, hefur lýst því yfir að ekki einn einasti rammi verði fjarlægður úr lokaklippi Scotts. Fox hefur ríka og stundum þreytandi tilhneigingu til þess að reyna að draga aldurstakmark á myndir sínar, sem með réttu ættu að vera R-merktar og þar með bannaðar yngri en sautján ára, niður í PG-13 og fá þær þannig leyfðar þrettán ára og eldri. Tilgangurinn með þessu er vitaskuld augljós en með því að stækka mögulegt áhorfendamengi aukast líkurnar á auknum gróða. En tilhugsunin um að hryllingurinn í Prometheus verði tónaður niður til þess að gera myndina aðgengilegri ungmennum er auðvitað skelfileg. Rothman ræddi þetta alvarlega mál í stuttu viðtali við MTV: „Myndin hefur ekki verið tekin fyrir en það verður gert á næstu dögum,“ segir Rothman. ,,En ég get sagt þér þetta og þið getið fært aðdáendum þessi tíðindi: Það verður ekki einn einasti rammi klipptur, [...] við stöndum 100% við bakið á þessari mynd og ef það þýðir R, þá verður það svo, því að við ætlum ekki að taka neina sjénsa sem gætu bitnað á myndinni.“ Aðdáendur ættu að geta tekið kæti sinni yfir þessum fréttum. Prometheus verður frumsýnd 8. júní hérlendis þannig að það er aðeins mánuður þar til stóra stundin rennur upp. Þórarinn Þórarinsson |
Nýjast
|