Kvikmyndahátíð RIFF hefst með pompi og prakt 27. september og stendur til 7. október. Sundbíó hefur átt sér fastan lið í hátíðinni og verður engin önnur kvikmynd en Back to the Future sýnd í ár.
Fréttatilkynning RIFF: Aftur í sundbíó
Sundbíóið er orðin ein af sérgreinum RIFF og einhver vinsælasti viðburður hátíðarinnar ár eftir ár. Ungir gestir sem aldnir skella sér í sund og njóta þess að svamla um leið og þeir horfa á einhverja perluna úr kvikmyndasögunni. Sundbíóið 2012 fer fram í Laugardalslaug 29. september nk.
Í ár sýnum við Back to the Future, sígilda ævintýramynd Robert Zemeckis frá árinu 1985. Lykilsena í þeirri mynd tengist svonefndu 'Enchantment Under the Sea' skólaballi, en það var þar sem söguhetjan Marty McFly kynnti bandaríska unglinga fyrir Little Richard og faðir hans George heillaði móðurina Lorraine með því að sýna illmenninu Biff í tvo heimana. Skreytingar í Laugardalslaug verða í stíl við skólaballið og andi og tónlist ársins 1955 svífur yfir vötnum – bókstaflega.
Miðasala í sundbíóið er þegar hafin á heimasíðu RIFF: www.riff.is