Þær fregnir berast nú frá Bandaríkjunum að Edward James Olmos sé í viðræðum um að taka að sér hlutverk eins helsta skúrksins í spennumynd Baltasars Kormáks, 2 Guns. Olmos lék fyrir margt löngu á móti Harrisson Ford í Blade Runner og var ábúðarmikill sem lögregluforingi þeirra Crockett og Tubbs í Miami Vice-sjónvarpsþáttunum. Upp á síðkastið hefur mest borið á honum í Battlestar Galactica-þáttunum auk þess sem hann lék raðmorðingja í Dexter. Hann er því alls ekki ókunnugur hlutverkum illmenna og átti til að mynda sterka innkomu í gangstermyndinni American Me árið 1992.
Náist samningar mun Olmos leika mexíkóska fíkniefnabaróninn Papi Greco sem gerir þeim Denzel Washington og Mark Whalberg lífið erfitt og leitt en þeir leika sérsveitarmann og fíkniefnalöggu sem þurfa að snúa bökum saman þegar ofbeldisfullt glæpahyski þrengir að þeim.