Hinir mjög svo lífseigu og bráðskemmtilegu sjónvarpsþættir um ævintýralegt tímaflakk og geimferðir hins dularfulla Doctor Who hafa sjaldan notið jafn mikilla vinsælda og nú, þegar þáttaröðin nálgast fimmtugsafmæli sitt. Engir þættir hafa nokkurn tíma fengið jafn mikið áhorf á BBC America og síðasta sería Doctor Who sem setti einnig met í niðurhali í iTunes.
Fyrsti þátturinn um Doctor Who fór í loftið í nóvember 1963 þannig að fimmtugsafmælið nálgast óðum og BBC ætlar að fagna því með 90 mínútna sjónvarpsmynd, An Adventure In Space And Time, sem verður sýnd á næsta ári. Myndin mun gera grein fyrir sköpunarsögu persónunnar sem hefur endurholdgast ítrekað en ekki færri en ellefu menn hafa leikið Doktorinn í gegnum árin. William Hartnell var fyrstur en eftir að Russell T. Davies blén nýju lífi í þættina fyrir nokkrum árum hafa þeir Christopher Eccleston, David Tennant leikið hetjuna auk Matt Smith sem gegnir hlutverki Doktorsins þessi misserin.
Mark Gatiss, sem hefur skrifað Doctor Who þætti og Sherlock fyrir BBC, skrifaði handrit afmælismyndarinnar. Nýjasta sería Doctor Who hefur göngu sína hjá BBC í Bretlandi í þessum mánuði og Bandaríkin fylgja í kjölfarið með haustinu.