Bored to Death-kvikmynd í bígerð15. júní '12 14:18
Þættirnir Bored to Death luku fyrir skömmu göngu sinni á kapalstöðinni HBO. Þrátt fyrir góðar viðtökur og áhorf ákvað kapalrisinn að hætta með þættina til þess að búa til pláss fyrir nýja þætti á stöðinni vinsælu. Þættirnir lifðu þrjár seríur en aðdáendur þeirra geta nú átt von á því að fá almennilegan endahnút á söguþræðinum þar sem áform eru uppi um að gera bíómynd þar sem þráðurinn verður tekinn upp þar sem frá var horfið í sjónvarpinu. Leikararnir Jason Schwartzman, Zach Galifianakis og Ted Danson fóru með aðalhlutverkin í þáttunum sem fjölluðu um þrjá afar sérkennilega vini með Schwartzman í hlutverki rithöfundar sem þykist vera einkaspæjari og kemur sér í þvílíkt klandur. Danson sagði í viðtali á Monte Carlo sjónvarpshátíðinni á dögunum að Bored to Death-kvikmynd væri í vinnslu og að hún myndi þá fylgja atburðum þáttanna eftir og jafnvel ljúka sögunni ögn betur en gert var í lok þriðju þáttaraðarinnar. Talsmaður HBO sagði í kjölfarið að búið væri að ræða möguleikann á kvikmynd en vildi ekki segja neitt frekar um málið. Galifianakis er í kjölfar vinsælda The Hangover-myndanna tveggja orðinn einn eftirsóttasti gamanleikari Bandaríkjanna og væntanlega er fyrst og fremst undir honum komið hvort Bored to Death-myndin verði að veruleika. Þriðja timburmannamyndin er hins vegar væntanleg á næsta ári. Vignir Jón Vignisson |
Nýjast
|