Brolin mun sveifla hamrinum í Oldboy

4. maí '12 11:41 Brolin mun sveifla hamrinum í Oldboy

Flestir geta líklega sammælst um að Spike Lee sækir á hann brattan með því að ráðast í endurgerð þeirrar frábæru ofbeldisorgíu Oldboy sem við fengum frá Suður-Kóreu fyrir nokkrum árum. Josh Brolin, aðalleikari endurgerðarinnar, er meðvitaður um pressuna sem hvílir á verkefninu og er satt best að segja dálítið taugaveiklaður.

Blaðamenn notuðu tækifærið þegar Brolin var að kynna Men in Black III og spurðu hann út í Oldboy. Hann sagðist fá í magann þegar hann hugsaði um myndina, sagðist vera bæði spenntur og kvíðinn en hann væri pottþéttur á því að það verði mögnuð reynsla að leika í myndinni. Hann lagði áherslu á að hann hefði aldrei samþykkt að leika í Oldboy nema leikstjóri upprunalegu myndarinnar, Chan-wook Park, hefði lagt blessun sína yfir verkefnið.

„Ég elska Oldboy og ég er í nánu sambandi við Chan-wook Park. Ég sendi honum tölvupóst fyrir nokkrum mánuðum bara til þess að fá blessun hans vegna þess að ef hann hefði neitað þá hefði ég ekki tekið þetta að mér.“

Brolin sagðist bera mikla virðingu fyrir Oldboy en engu að síður yrðu gerðar nokkrar breytingar á sögunni þótt grunnsagan héldi sér að sjálfsögðu sem og andi frummyndarinnar. Og þá var komið að stóru spurningunni. Verður hamarbardaginn í nýju myndinni?

„Já. Hamarinn verður þarna. Hnífuronn og allt það dót.“ Þá vitum við það en atriðið þar sem Dae-su Oh ryðst í gegnum hóp skúrka með klaufhamar á lofti er með eftirminnilegri slagsmálasenum síðari ára.  

Þórarinn Þórarinsson

Svarthöfði 2011 - Allur réttur áskilinn | svarthofdi (hjá) svarthofdi.is | Um Svarthöfða