Bruce Campbell er hress með Evil Dead-endurgerðina22. ágúst '12 10:09
Leikarinn Bruce Campell sem fór á sínum tíma á kostum í Evil Dead-myndum Sam Raimi er vanur því að tala tæpitungulaust þannig að grjótharðir aðdáendur gömlu hryllingsmyndanna ættu að geta tekið mark á honum þegar hann lofar nýju Evil Dead-endurgerðina í hástert.
Campell lék Ash í Evil Dead en eins og allt vel skólað fólk í hryllingsfræðunum veit endaði hann með að missa hendina í viðureign sinni við þá djöflamergi sem herjuðu á hann og félaga hans í Evil Dead. Hann endaði með að fá sér vélsög í stað handarinnar horfnu og beitti henni af einurð og festu gegn fjendum sínum.
Campell framleiðir Evil Dead-endurgerðina ásamt Sam Raimi og Rob Tapert sem framleiddu gömlu myndina þannig að óhætt er að segja að réttu mennirnir standi að baki Fede Alvarez, leikstjóra nýju myndarinnar.
„Við erum mjög spenntir og stöndum heilshugar að baki myndinni en það mun taka á að fá Evil Dead-aðdáendur til þess að gera slíkt hið sama. Við erum meðvitaðir um að við höfum móðgað marga þeirra og við sýnum reiði þeirra og ákafa skilning. En við viljum leggja áherslu á að við klúðruðum þessu ekki. Þessi mynd verður alveg jafn eftirminnileg og Evil Dead án þess að um sömu mynd sé að ræða.“
Campell segir nýju myndina vera frábæra og líta vel út. „Brellurnar eru tíu sinnum betri en nokkuð sem við höfðum aðgang að og leikararnir eru allir betri en við vorum 1979.“ Campbell bætir við að Raimi sé brjálaður snillingur og þess vegna hafi útkoman orðið jafn klikkuð og raun ber vitni.
Áætlað er að frumsýna nýju Evil Dead-myndina í apríl 2013.
Þórarinn Þórarinsson |
Nýjast
|