Carrie fer í blóðbað, aftur

24. ágúst '12 12:39 Carrie fer í blóðbað, aftur

Entertainment Weekly birti í nótt fyrstu ljósmyndirnar úr endurgerðinni á Brian De Palma-hrollinum Carrie frá árinu 1976. Sissy Spacek lék á sínum tíma unglingsstúlkuna Carrie White sem hefndi sín grimmilega á eineltispúkum á lokaballi skólagöngunnar. Að þessu sinni kemur í hlut ungstirnisins Chloe Crace Moretz (Kick-Ass) að túlka þessa einu þekktustu persónu hrollvekjumeistarans Stephen King. Ljósmyndirnar má sjá hér fyrir neðan.

Carrie er gerð eftir fyrstu skáldsögu Kings með sama nafni og fjallar um stúlku sem verður fyrir grimmilegu ofbeldi í skólanum. Ófétin sem hrella Carrie eru þó ekki meðvituð um að hún býr yfir mögnuðum dulrænum hæfileikum og þegar hún fær loksins nóg beitir hún kröftum sínum til þess að stúta liðinu.

Kimberly Peirce leikstýrir nýju myndinni en hún er helst þekktust fyrir Boys Don'y Cry með Hilary Swank. Leikkonan Julianne Moore fer með hlutverk móður Carrie, sem Piper Laurie gerði ógleymanleg skil 1976. Þá eru Judy Greer og Gabriella Wilde einnig í áberandi hlutverkum.

Carrie verður frumsýnd 15. mars vestanhafs.




 

Þórarinn Þórarinsson

Svarthöfði 2011 - Allur réttur áskilinn | svarthofdi (hjá) svarthofdi.is | Um Svarthöfða