Biðin eftir framhaldi Sin City er fyrir löngu orðin óþolandi en nú eru leikstjórinn Robert Rodriguez og myndasöguhöfundurinn Frank Miller loksins komnir í startholurnar fyrir Sin City 2. Þeir byrja að raða í hlutverk í næstu viku og tökur ættu að geta hafist í sumar.
Í Sin City fléttuðu þeir félagar saman þrjár myndasögur úr Sin City-bokaflokki Millers og skiluðu af sér frábærri film noir mynd þar sem ofbeldið, kynþokkinn og subbuskapurinn á síðum bóka Millers lifnaði við á tjaldinu bókstaflega.
Frábær hópur leikara skilaði sterítýpum Millers úr rökkurheimum með slíkum glæsibrag að unun var á að horfa. Mickey Rourke rétti feril sinn við í hlutverki hálftröllsins með gullhjartað, Marv. Bruce Willis fór á kostum í hlutverki dæmigerðs riddara götunnar í anda Chandlers sem löggan Hartigan og Clive Owen var eitursvalur í rauðum Converse-skóm í hlutverki andhetjunnar réttsýnu Dwight.
Jessica Alba, Devon Aoki, Powers Boothe, Rosario Dawson, Benicio Del Toro, Michael Clarke Duncan, Carla Gugino, Josh Hartnett, Rutger Hauer og Brittany heitin Murphy settu einnig öll sterkan svip á myndina.
Rodriguez segist hafa viljað gera framhald með Frank Miller frá því þeir kláruðu Sin City árið 2005 en hann hafi viljað bíða þangað til þeir væru með skothelt efni í höndunum. „Okkur fannst við skulda aðdáendum það að bíða þar til við værum með eitthvað sannarlega frá bært í höndunum sem myndi standast gríðarlegar væntingar og A Dame To Kill For verður svo sannarlega biðarinnar virði. “
Miller tekur í sama streng: „Fyrsta Sin City-myndin sló áhorfendur kalda enda höfðu þeir aldrei séð neitt þessu líkt áður. Robert Rodriguez og ég ætlum að hrista enn meir upp í þessu núna og skila af okkur trylltri mynd sem mun jafnvel ganga lengra en sú fyrsta.“
Miller er búinn að skrifa handrit með William Monahan (The Departed) en lítið er vitað um innihaldið annað en að í ljósi þess sem áður hefur komið fram þá verður myndin sett saman úr þremur Sin City-sögum Millers. A Dame To Kill For verður sjálfsagt þungamiðjan en fullyrt er að hinar sögurnar t vær verði frumsamdar og hafi ekki sést áður á prenti.
Þótt Marv hafi verið tekinn af lífi í rafmagnsstólnum í Sin City má nánast bóka að Mickey Rourke endurtaki rullu sína þar sem A Dame To Kill For gerist á undan sögunum sem gerð voru skil í fyrstu myndinni. Hins vegar er harla ólíklegt að Clive Owen snúi aftur sem Dwight þótt hann sé aðalpersóna A Dame To Kill For þar sem Dwight lætur breyta andliti sínu í lok þeirrar sögu og persónan er því ekki á nokkurn hátt lík Owen eins og hann birtist í The Big Fat Kill í fyrri myndinni.
A Dame To Kill For segir frá endurfundum gamals kærustupars, Dwights og Övu, sem er klassískt tálkvenndi rökkurmyndanna, en Ava fær Dwight til þess að drepa ófétið eiginmann sinn. Allar áætlanir renn út í sandinn og þegar Dwight ræður ekki við ofureflið kallar hann brjálæðinginn Marv til en sá er á við heilan her þegar kemur að alvöru átökum.
Mickey Rourke er því líklegasti leikarinn úr fyrri myndinni til þess að snúa aftur en fastlega má búast við að fjölmargir aðrir snúi aftur og þar sem Miller er mjög annt um súlustelpuna Nancy er Jessica Alba væntanlega mjög ofarlega á blaði.
Johnny Depp og Angelina Jolie hafa verið orðuð við hlutverk í Sin City 2 og það eitt er víst að varla finnst heppilegri leikkona en Angelina til þess að bregða sér í gervi hinnar banvænt fögru Övu.