Breski leikarinn Christopher Eccleston verður illmennið Malekith The Accursed í Thor 2: The Dark World og mun sjá til þess að Chris Hemsworth fái að svitna við að sveifla Mjölni í hlutverki þrumuguðsins Þórs.
Hinn bölvaði Malekith er ofurskúrkur í Marvel-heiminum og hefur í myndasögunum tekist harkalega á við Þór en skúrkurinn drottnar yfir hinum myrku álfum í Svartálfaheimum.
Eccleston hefur meðal annars leikið leðurjakkaklæddan Doctor Who með tilþrifum og gert það gott í bíómyndum eins og 28 Days Later, The Others og Jude.
Game of Thrones-leikstjórinn Alan Taylor tekur við stjórninni af Kenneth Branagh sem leikstýrði fyrstu Thor-myndinni.