Emmerich og Devlin til í Independence Day-framhald

11. júlí '12 13:46 Emmerich og Devlin til í Independence Day-framhald

Þeir félagar Roland Emmerich og Dean Devlin hafa í gegnum árin ítrekað kynnt undir vonir aðdáenda sinna um framhald af hinni feykivinsælu geiminnrásarveisu Independence Day frá 1996. Af og til hefur verið slúðrað um framhald og jafnvel tvær nýjar ID4 myndir sem teknar yrðu í einni lotu en enn sem komið er hefur aldrei neitt sem hönd er festandi á komið fram. Og nú er Devlin byrjaður að tala enn eina ferðina.

Hann segir þá Emmerich hafa staðist freistinguna árum saman vegna þess að þeim þyki vænt um orðspor fyrstu myndarinnar. „Fyrsta myndin markaði upphaf farsæls ferils okkar allra og okkur þykir vænt um myndina og þótti mjög ljúft að gera hana, “ segir Devlin við Hollywood Reporter. „Við vildum ekki gera framhald bara vegna þess að það myndi skila miklum gróða. Við vildum einungis gera framhald þegar við værum með góða hugmynd sem kæmi sem eðlilegt og sjálfsagt framhald fyrstu myndarinnar. Við vildum gera lífrænt framhald en ekki bara svona „græðum meiri peninga “-mynd.“

Devil segir þá félaga einmitt telja sig vera komna á þennan stað núna. Sextán árum eftir að Independence Day var frumsýnd. Hann var ekki fáanlegur til þess að gefa neitt upp um söguþráðinn en viðurkenndi að þeir ætluðu að reyna að smala saman eins mörgum leikurum úr fyrri myndinni og mögulegt væri. „Við erum að hefja langt ferli þar sem við munum tala við alla. Við verðum síðan bara að sjá hverju það skilar. “


En við megum semsagt gera okkur einhverjar vonir um að Will Smith, Bill Pullman, Jeff Goldblum,
Judd Hirsch, Robert Loggia og Vivica A. Fox taki aðra lotu gegn ófétislegum innrásarher utan úr geimnum þrátt fyrir að Smith og Goldblum hafi tekist að gera út af við innrásarliðið fyrir sextán árum með því að smita tölvubúnað móðurskipsins, sem virtist sem betur fer keyra á Windows, með tölvuvírus.

Randy Quaid verður þó líklega fjarri góðu gamni, hvernig sem fer, þar sem hann þurfti endilega að taka upp á því að drepast í ID4.
 

Þórarinn Þórarinsson

Svarthöfði 2011 - Allur réttur áskilinn | svarthofdi (hjá) svarthofdi.is | Um Svarthöfða