Fox hefur með hægð og í rólegheitum í nokkur ár undirbúið gerð nýrrar myndar um blindu Marvel-hetjuna Daredevil. David Slade, leikstjóri 30 Days Of Night og Twilight: Eclipse kom að verkefninu fyrir um það bil ári en hugmyndin er að byggja myndina á Frank Miller myndasögunni Born Again sem kom út árið 1986.
Í raun er vel við hæfi að snúa sér að Born Again enda dugir ekkert minna en endurfæðing í tilfelli Daredevil þar sem bíómyndin um hetjuna frá árinu 2003 með Ben Affleck í titilhlutverkinu virkaði svo illa að hún hefði hæglega getað gert út um frekari ævintýri hetjunnar á hvíta tjaldinu.
Í Born Again lendir lögmaðurinn Matt Murdock í meiriháttar klandri þegar fyrrverandi ritarinn hans, Karen Page, kjaftar frá því að hann sé í raun Daredevil. Stúlkan sú lenti í ræsinu eftir að hún hætti að starfa hjá lögmannastofunni Nelson&Murdock og kjaftar frá leyndarmálinu til þess að verða sér út um skammt af heróíni.
The Avengers koma við sögu í myndasögu Millers en hverfandi líkur eru á því að einhverjir út þeim vaska hópi mæti til leiks í nýju Daredevil-myndinni þar sem þær hetjur eru á samingi hjá öðru kvikmyndaveri.
Þessar dýrmætu upplýsingar komast vitaskuld í hendur glæpaforingjans og erkifjanda Daredevil, The Kingpin, sem snýr sér að því af fullum krafti að rústa lífi Murdocks frekar en að takast á við hann í búningi Daredevil. Hann sendir þó ófurskúrkinn Nuke á heimavöll Daredevil í Hell´s Kitchen í New York til þess að klára dæmið endanlega.