Endurlífgun unglingaskjaldbakanna tefst

18. júní '12 12:33 Endurlífgun unglingaskjaldbakanna tefst

Leikstjórinn og sprengjusérfræðingurinn Michael Bay tryggði sér endurgerðarréttinn á Törtles eða Teenage Mutant Ninja Turtles fyrir ári síðan eða svo. Síðan þá hefur hann reynt að koma nýrri mynd um stökkbreyttu slagsmálaskjaldbökurnar Leonardo, Raphael, Michaelangelo og Donatello í framleiðslu. Og akkúrat þegar allt leit út fyrir að tökur gætu farið að hefjast fljótlega er allt komið í frost.

Fregnir herma að vandræði hafi komið upp í kringum handrit myndarinnar sem á að heita Ninja Turtles en þar stendur til að blanda saman tölvugerðum persónum og leikurum af holdi og blóði.

Bay kemur ekki til með að leikstýra myndinni og mun einungis sinna framleiðsluþættinum og eftirláta Jonathan Liebesman, leikstjóra Battle Los Angeles og Wrath of the Titans, leikstjórnina.

Ekki liggur fyrir hvaða leikarar koma til með að fara með hlutverk í myndinni en Bay sagði í viðtali fyrr á árinu að í þessari nýju nálgun hans á skjaldbökurnar væri gengið út frá því að þær væri geimverur (!) og hafa skaparar Teenage Mutant Ninja Turtles, þeir Kevin Eastman og Peter Laird, lagt blessun sína yfir þau ósköp.

Upphaflega stóð til að frumsýna myndina jólin 2013 en hefur henni verið nú frestað til maí 2014.

Vignir Jón Vignisson

Svarthöfði 2011 - Allur réttur áskilinn | svarthofdi (hjá) svarthofdi.is | Um Svarthöfða