Darren Aronofsky hefur boðið breska tuddanum og erkitöffaranum Ray Winstone hlutverk illmennisins í kvikmyndinni Noah sem hann mun taka upp á Íslandi og í Bandaríkjunum í sumar. Russell Crowe leikur sjálfan Nóa og í ljósi hugmynda Aronofskys um leikara í hlutverk illmennisins má vera ljóst að í myndinni mun arkarsmiðurinn Nói þurfa að kljást við annað og meira en óþolandi þráláta rigningu.
Arronofsky hefur íhugað Val Kilmer, Liev Schreiber og Liam Neeson í hlutverk vonda kallsins en hallar sér nú í áttina að Winstone. Því gæti farið svo að þessi magnaði leikari sæki Ísland heim í sumar og þá ekki í fyrsta skipti þar sem hann kom til landsins fyrir nokkrum árum í tengslum við frumsýningu ofbeldisvestrans The Proposition. Þá ræddi hann við blaðamenn og drakk vodka af ótrúlegri elju og einurð á börum miðbæjarins án þess að haggast.
Auk Crowe hefur Aronofsky þegar fest þá Logan Lerman og Douglas Booth í hlutverk sona Nóa og Harry Potter-stúlkan Emma Watson leikur unga konu sem heillar annan soninn upp úr skónum. Þá er hlutverki eiginkonu Nóa óráðstafað en þar hefur leikstjórinn verið með þær Julianne Moore og Jennifer Connelly í sigtinu.
Tökur á Noah hefjast í ágúst og frumsýning er áætluð í lok mars 2014.