Ford ekki líklegur í Blade Runner 2 en Scott vonar að svo verði

9. febrúar '12 11:59 Ford ekki líklegur í Blade Runner 2 en Scott vonar að svo verði

Fyrr í vikunni greindi Svarthöfði frá orðrómi um að Harrison Ford væri í viðræðum um að endurtaka hlutverk Ricks Deckard í fyrirhuguðu framhaldi af Blade Runner frá árinu 1982. Framleiðandi myndarinnar hefur nú kæft þessar sögusagnir með þessum orðum: „Leikararáðningar gætu ekki verið fjærri í okkar huga en einmitt núna".

Þrátt fyrir þetta er Ridley Scott ekki af baki dottinn, „Við erum ennþá að ákveða hvort þetta verði forleikur eða framhald. Þetta er áhugaverð umræða. Ég er að funda með rithöfundum og ég hef einnig leitað til Hampton Fancher, handritshöfundar Blade Runner, og hann er með þetta allt á hreinu. Ég talaði við hann fyrr í vikunni en það liggur ekkert handrit fyrir.“

Aðspurður segist Scott Ford ekki vera lykilatriði í áformum sínum: „Alls ekki. En ég er ekki viss um hvort það verði hornsteinn í sögunni. En ef hlutir myndu þróast svo, væri ekkert sem myndi gleðja mig meira."

Svarthöfði mun vitaskuld fylgjast náið með gangi mála og greina frá því hvernig mál þróast jafn óðum enda Scott í miklu uppáhaldi á ritstjórninni og Blade Runner í hávegum höfð.

Vignir Jón Vignisson

Engin ummæli hafa verið skráð

Svarthöfði 2011 - Allur réttur áskilinn | svarthofdi (hjá) svarthofdi.is | Um Svarthöfða