Forleikurinn að Jackie Brown í framleiðslu

2. febrúar '12 12:44 Forleikurinn að  Jackie Brown í framleiðslu

Quentin Tarantino-myndin Jackie Brown frá árinu 1998 er frekar vanmetin og sker sig úr að því leyti að ólíkt öllum öðrum myndum kappans þá skrifaði hann hana ekki frá grunni en hún byggir á skáldsögunni Rum Punch eftir Elmore Leonard.

Nú stendur til að kvikmynda bókina The Switch, sem er nokkurs konar forleikur að Rum Punch, en þar eru persónur Samuel L. Jacksons og Roberts De Niro, Ordell Robbie og Louis Gara kynntir til sögunnar. Þeir Mos Def og John Hawkes munu leika þessa krimma að þessu sinni en myndin á að gerast fimmtán árum áður en Jackie Brown. Leikstjóri og handritshöfundur myndarinnar er Dan Schechter og titli hennar er ákveðna greininum í nafni bókarinnar sleppt og hún heitir einfaldlega Switch.

Bókin, sem Leonard skrifaði árið 1978, segir frá því þegar Ordell og Louis kynnast í fangelsi þar sem þeir sita inni fyrir bílaþjófnað. Þegar þeir losna úr fangelsinu ákveða þeir að fremja eitt almennilegt rán saman. Mannrán meira að segja þar sem þeir ræna eiginkonu auðugs verktaka í Detroit. Þegar þeir krefast lausnarfés er komið að tómum kofanum þar sem maðurinn reynist vera skíthæll og neitar að greiða krónu fyrir konuna sína og er himinnlifandi að vera laus við hana. Þetta fer illa í þá félaga og sérstaklega eiginkonuna og þá er gripið til varaáætlunarinnar þar sem eiginkonan spilar stóran þátt í hefndaraðgerðum gegn eiginmanninum.

Til gamans má geta þess að þegar Tarantino var fimmtán ára var hann gripinn glóðvolgur við að hnupla The Switch en að hans sögn er þetta eina skiptið sem hann hefur gerst brotlegur við lög.

Tökur á Switch hefjast í maí.
 

Vignir Jón Vignisson

Engin ummæli hafa verið skráð

Svarthöfði 2011 - Allur réttur áskilinn | svarthofdi (hjá) svarthofdi.is | Um Svarthöfða