Lindy Hemming, búningahönnuður The Dark Knight Rises, hefur upplýst að hún hafi hannað búninga og vanþróaða gasgrímu á Bane sem notuð voru í atriðum sem ekki rötuðu í endanlega útgáfu Christophers Nolan á myndinni.
Atriðin áttu að veita innsýn í forsögu illmennisins og skýra betur hvers vegna hann notast við grímuna og mittisbeltið. Þá voru einnig hönnuð ansi stór og ljót ör á bak leikarans Tom Hardy en áverkana átti Bane að hafa fengið sem ungur maður í því ógeðslega fangelsi sem hann ólst upp í.
Atriðið sem Nolan lét fjúka sýndi ungan Bane þar sem hann lærir að slást í fangelsinu og þar er hann með vanþróaðar útgáfur af bæði grímunni og beltinu sem greinilega styður við bakið á honum. Í atriðinu stendur Tom Hardy í hlekkjum á meðan skríllinn í fangelsinu veitist að honum með fúkyrðum og ofbeldi.
Hemming þykir miður að atriðið hafi ekki fengið að halda sér. „Það er dapurlegt en ætli það þurfi ekki alltaf að klippa eitthvað. Ég ætla ekkert að tala of mikið um þetta fyrst þetta er ekki í myndinni en það var líka enn annað atriði sem útskýrði hvers vegna hann bar grímuna og hvaðan hún kom.“