Frændi Friedkins skaut Frank Nitti

2. ágúst '12 12:53 Frændi Friedkins skaut Frank Nitti

Leikstjórinn William Friedkin hefur verið mistækur á löngum ferli en þegar honum tekst vel til standast fáir honum snúning. Sérstaklega þegar kemur að því að hrella áhorfendur og ganga fram af þeim. Hann haf'ði varanleg áhrif á hryllingsmyndir fyrir rétt tæpum 40 árum með The Exorcist sem margir telja enn þann dag í dag einhverja bestu hryllingsmynd allra tíma. Þegar myndin var frumsýnd á sínum tíma fréttist víða af áhorfendum sem ýmist féllu í yfirlið eða köstuðu upp yfir djöfulganginum í unglingsstúlkunni Reagan sem var heltekin af hinum illa anda Pazuzu.

Friedkin hafði ekki síður áhrif á lögreglumyndir með The French Connection frá árinu 1971 þar sem Gene Hackman fór á kostum í hlutverki löggunnar Popeye Doyle sem eltist við franskan fíkniefnabarón af sömu einurð og hörku og Ahab skipstjóri elti Moby Dick. Stíllinn á The French Connection var meira í ætt við heimildarmyndir en venulegar löggumyndir og kom flatt upp á áhorfendur sem hafa síðan þá séð þessu stílbragði beitt ótal sinnum.

Friedkin kunni John Frankenheimer (Birdman of Alcatraz, Manchurian Candidate, Ronin) litlar þakkir fyrir að taka við keflinu og gera The French Connection II fjórum árum síðar enda taldi Friedkin engu við sögu Doyle að bæta. Þá hefur Friedkin einnig talað fjálglega um að Gene Hackman hafi einungis endurtekið rullu sína í framhaldinu peninganna vegna.

Lögreglumenn hafa löngum verið Friedkin hugleiknir. Rannsóknarlögreglumaðurinn Kinderman vó til dæmis þungt í The Exorcist þótt myndin hverfðist um kaþólskan prest í sálarháska sem reyndi að flæma djöful úr unglingsstúlku. Þá þarf ekki að fjölyrða um hina einbeittu löggu Popey Doyle og William Petersen (síðar Grissom í CSI) vanmetinn sprett í hlutverki lögreglumanns í To Live and Die in L.A. fyrir Friedkin árið 1985.

Þegar Friedkin ræddi Killer Joe við Empire á dögunum sagði hann frá því að áhuga hans á lögreglumönnum mætti rekja langt aftur í æsku hans. Friedkin fæddist árið 1935 í Chicago þar sem hann ólst upp.

Þar átti hann frænda, Harry Lang, fræga en gerspillta löggu sem þáði mútur frá gengi Als Capone. Þegar Capone var stungið í steininn tók Frank Nitti við genginu og borgarstjórinn, Anton Cermak, fól frænda Friedkins og félaga hans að uppræta glæpagengið. Harry Lang og félaginn völsuðu þá inn á skriftofu Nittis þar sem Harry skaut hann nokkrum skotum og skaut sig síðan í handlegginn til þess að láta líta út fyrir að Nitti hefði verið fyrri til að skjóta á hann.

Nitti lifði árásina af en í kjölfarið vall spillingin í kringum Harry upp, hann var rekinn úr lögreglunni og gerðist lífvörður Cermaks og stóð við hlið hans þegar hann var skotinn til bana árið 1935. Lífvarðarferlinum lauk fljótlega eftir það, eðlilega kannski, og Harry opnaði bar þar sem lögreglumenn héldu til. Aðallega spilltar löggur að sögn Friedkins sem vann á barnum í æsku þar sem hann kynntist þessum mönnum og heillaðist svo að lögreglumenn hafa sett áberandi mark á feril hans sem kvikmyndaleikstjóri.

Killer Joe var frumsýnd á Íslandi í gær en þar sýnir Friedkin að hann kann enn að stuða og hneyksla áhorfendur svo um munar. Hann tók myndina á aðeins nítján dögum en hann er þekktur fyrir að taka aldrei fleiri en eina til tvær tökur af hverju atriði. Hann segist einfaldlega ekki nenna að standa í endalausum endurtekningum og að hann myndi sofna ef hann tæki sömu senuna upp oftar. Þá harðbannar Friedkin leikurum sínum að leika segir að þeir eigi að „vera“ vegna þess að hægt sé að finna lyktina af „leik“ langar leiðir.

Svarthöfði hefur þegar birt dóm um Killer Joe og eldri myndir Friedkins verða teknar úr Bunkanum á næstunni.
 

Þórarinn Þórarinsson

Svarthöfði 2011 - Allur réttur áskilinn | svarthofdi (hjá) svarthofdi.is | Um Svarthöfða