Hasarmyndin Bullet to the Head með Sylvester Stallone verður frumsýnd 1. febrúar 2013. Upphaflega átti að frumsýna hana í apríl á þessu ári en Warner Bros tilkynntu mánuði fyrir frumsýningu að henni yrði frestað.
Walter Hill leikstýrir myndinni sem segir frá leigumorðingja sem gengur til liðs við lögreglumann í þeim tilgangi að handsama morðingja félaga þeirra. Auk Sly fara Jason Momoa, Sung Kang, Christian Slater og Sarah Shahi með helstu hlutverk.
Upphaflega stóð til að Wayne Kramer leikstýrði myndinni og réð hann Thomas Jane til þess að fara með annað aðalhlutverkanna. Þegar Kramer yfirgaf verkefnið stakk Jane upp á því að Sly myndi hafa samband við gömlu hasarkempuna Walter Hill. Þegar Hill tók að sér leikstjórnina þá var framleiðandinn Joel Silver fenginn með í hópinn en því miður gerði hann það að sínu fyrsta verki að reka Jane og ráða Sung Kang í hans stað.
Búast má við sýnishorni fyrir hasarmyndina í sumar. Sly sést næst í The Expendables 2 í sumar.