Fyrsta ljósmyndin af Craig sem Bond í Skyfall

1. febrúar '12 11:53 Fyrsta ljósmyndin af Craig sem Bond í Skyfall

Fyrsta opinbera ljósmyndin af Daniel Craig í hlutverki njósnara hennar hátignar, James Bond, í hinni væntanlegu Skyfall var afhjúpuð á 007.com fyrr í morgun. Myndina má sjá hér að ofan.

Þegar fortíð M eltir hana uppi reynir verulega á traust hennar til Bonds og eftir að höfuðstöðvar MI6 verða fyrir árás illmenna kemur það í hlut Bonds að elta skúrkana uppi og láta þá gjalda fyrir illvirkið. Og eins og Bonds er von og vísa þá tekur hann ófétin engum vetlingatökum.

Sam Mendes, sem á að baki eðalmyndirnar American Beauty og Road to Perdition, leikstýrir Skyfall og hefur yfir ótrúlega flottum mannskap að ráða en auk Craig verða Judi Dench, Javier Bardem, Albert Finney, Naomie Harris, Ralph Fiennes, Ben Whishaw og Bérénice Marlohe með í hasarnum. Bardem og Fiennes fara með hlutverk skúrkanna og hin tignarlega Marlohe mun leika Bond-stúlkuna.

Vignir Jón Vignisson

Engin ummæli hafa verið skráð

Svarthöfði 2011 - Allur réttur áskilinn | svarthofdi (hjá) svarthofdi.is | Um Svarthöfða