Grjótharður Judge Dredd

7. febrúar '12 11:40 Grjótharður Judge Dredd

Enn er margt á huldu um Dredd, nýja mynd um hinn harða dómara og böðul, Judge Dredd en ljósmyndir sem birst hafa úr myndinni lofa góðu. Sylvester Stallone lék Dredd árið 1995 í frekar mislukkaðri mynd sem er flestum gleymd. Fyrir liggur að þessi nýja mynd verði miklu tengdari myndasögunum sem gerðu Dredd frægan og ljósmyndirnar benda eindregið til þess að lítið verði gefið eftir í ofbeldinu og að harkan verði mun meiri en þegar Stallone skarði hjálmi dómarans.

Sem fyrr fer Dredd um refilstigu Mega City One þar sem óþjóðalýður veður uppi í siðleysi hruninnar menningar. Karl Urban leikur Dredd sem er sá Götudómari (Street Judge) sem hyskið óttast mest enda tekur hann pakkið engum vetlingatökum. Dómararnir hafa leyfi til þess að framfylgja lögunum, dæma glæpamenn og taka þá af lífi á staðnum ef þess þykir þurfa.

Áætluð frumsýning myndarinnar er 21. september vestanhafs. Óvíst er hvenær myndin berst hingað heim.

Þórarinn Þórarinsson

Engin ummæli hafa verið skráð

Svarthöfði 2011 - Allur réttur áskilinn | svarthofdi (hjá) svarthofdi.is | Um Svarthöfða