Universal hefur ákveðið að gefa ástsælu gulu skósveininum úr Despicable Me eða Aulinn ég sína eigin mynd. Núþegar er framhald af Despicable Me í vinnslu þar sem Al Pacino fer með hlutverk skúrksins.
Pierre Coffin og Kyle Balda koma til með að leikstýra myndinni og Brian Lynch skrifar. Óvíst er hvort eða hvaða persónur úr Despicable Me komi fram í myndinni en vænta má að óþokkinn Gru komi í einhverju minna hlutverki.
Universal hafa tilkynnt að gulu skósveinarnir og myndin þeirra komi árið 2014 en Despicable Me 2 verður frumsýnd á næsta ári.