Handritshöfundur Contraband hjálpar til við að landa Moby Dick

13. júní '12 12:13 Handritshöfundur Contraband hjálpar til við að landa Moby Dick

Handritshöfundur Contraband, Aaron Guzikowski, hefur verið fenginn til liðs við áhöfnina sem vinnur að nýrri kvikmyndaaðlögun rússneska leikstjórans Timur Bekmambetov á skáldsögunni Moby Dick. Guzikowski hefur verið falið að endurskrifa stóran hluta handritsins í þeim tilgangi að ná framleiðslukostnaði myndarinnar niður.

Bekmambetov stimplaði sig inn með Nochnoy dozor eða Night Watch árið 2004. Í kjölfarið leikstýrði hann hasarmyndinni Wanted með Angelinu Jolie, James McAvoy og Morgan Freeman í aðalhlutverkum.

Nálgun Bekmambetov á Moby Dick verður frábrugðin bókinni eftir Herman Melville þar sem sagan verður ekki sögð í fyrstu persónu eins í skáldsögunni. Þá verður lögð áhersla á hvernig Moby lagði önnur skip í rúst áður en hann mætti hinum þráhyggjusjúka Ahab skipstjóra.

Adam Cooper og Bill Collage skrifuðu fyrstu handritsdrögin, síðan tók Evan Spiliotopoulos og nú Guzikowski sem styðst við ábendingar frá Bekmambetov.

Næsta mynd Bekmambetov er Abraham Lincoln: Vampire Hunter sem verður frumsýnd í sumar.

 

Vignir Jón Vignisson

Svarthöfði 2011 - Allur réttur áskilinn | svarthofdi (hjá) svarthofdi.is | Um Svarthöfða