Því miður verður ekkert af því að sá vaski Dani Mads Mikkelsen leiki illmenni í Marvel-myndinni Thor 2. Eins og Svarthöfði hefur áður greint frá stóð til að fá Mikkelsen til þess að leika illmenni við hlið Loka í framhaldsmyndinni um þrumuguðinn en þar sem tökur á myndinni rekast á við tökur á sjónvarpsþáttunum um geðlækninn og mannætumatgæðinginn Hannibal Lecter neyddist Mikkelsen til þess að gefa Thor 2 frá sér.
Mikkelsen fer með hlutverk Hannibals í þáttunum sem segja sögu morðingjans áður en atburðirnir í Red Dragon og The Silence of the Lambs áttu sér stað þannig að Hannibal leikur lausum hala með FBI-manninn Will Graham á hælunum.
„Það verur því miður ekkert af þessu,“ segir Mikkelsen. „Ég fór á fund en það var aðeins of seint og síðan kom Hannibal upp og tökurnar á þessum tveimur verkefnum stangast á, þannig að...“
Daredevil er önnur Marvel-ofurhetja sem líður fyrir innreið mannætunnar í sjónvarp þar sem leikstjórinn David Slade leikstýrir þáttunum um Hannibal og hefur því sagt sig frá endurræsingu Daredevil þar sem áætlanir rekast einnig á í því tilfelli.
Slade hafði lýst miklum áhuga á Daredevil og hafði viðrað vonir sínar á Twitter um að fá Josh Hartnett til þess að leika blindu hetjuna í nýrri mynd.
Þættirnir um Hannibal eru runnir undan rifjum Bryan Fuller sem á heiðurinn að Pushing Daisies. Fuller seldi NBC þrettán þætti og tökur eru þegar komnar í gang. Slate á að baki The Twilight Saga: Eclipse og Hard Candy. Leikarinn Hugh Dancy mun fara með hlutverk Will Graham en þeir Hannibal hafa lengi eldað grátt silfur saman um langt árabil.
Mikkelsen er þekktastur fyrir hlutverk sín í Punsher-myndunum dönsku, Valhalla Rising og vitaskuld, Casino Royale, þar sem hann lék skúrkinn Le Chiffre. Þá hlaut hann verðlaun á kvikmyndahátíðinni í Cannes í ár fyrir leik sinn í Hurt.
Hannibal á sjálfsagt góða möguleika á að ná fótfestu í sjónvarpi en stéttarbróðir hans, Dexter, hefur rutt brautina undanfarin ár fyrir sjarmerandi og snaróða raðmorðingja.