Harrison Ford í viðræðum fyrir Blade Runner 26. febrúar '12 11:43
Snýr Deckard aftur? Samkvæmt heimildum twitchfilm.com er Harrison Ford í viðræðum um að snúa aftur í hlutverki vélmennaveiðarans Deckards í framhaldi af Blade Runner frá árinu 1982. Ekki alls fyrir löngu var tilkynnt að Ridley Scott myndi snúa aftur í leikstjórastólinn fyrir framhaldið en hann leikstýrði fyrri myndinni á sínum tíma og telst hún til allra bestu verka hans. twitchfilm.com greinir frá því að viðræður við Ford séu á frumstigi og ekki sé víst hvort framleiðendur myndarinnar nái að landa honum í hlutverkið. Þegar greint var frá áformum um að gera framhald af Blade Runner í fyrra sagði framleiðandinn Andrew Kosove að Scott myndi nálgast Blade Runner úr nýrri átt og að Ford myndi ekki tengjast verkefninu á nokkurn hátt, „Ný nálgun þýðir í mínum huga hafa allt ferskt og þar á meðal leikarana". Forvitnilegt verður að sjá hvort Ford taki að sér hlutverk Deckards á ný þar sem leikur hans í Blade Runner er með því besta sem hann hefur gert á ferli sínum. Hvað sem Ford kýs að gera breytir engu um að Scott er á miklu fortíðarflippi um þessar mundir og horfir til eldri meistaraverka sinna þar sem hann hefur undanfarið verið á fullu við að klára Alien-forleikinn Prometheus en hann leikstýrði fyrstu Alien-myndinni fyrir þremur áratugum. Vignir Jón Vignisson |
Nýjast
|
Engin ummæli hafa verið skráð