Harry og Lloyd leita að barni og nýra27. ágúst '12 09:20
Draumur þeirra sem hafa í tvo áratugi þráð framhald af ævintýrum þess heimska og þess heismkari, fábjánanna Lloyd Christmas og Harry Dunne, og þá vitaskuld með þá Jim Carrey og Jeff Daniels í hlutverkum ídjótanna er við það að rætast. En reynslan hefur sannað og sýnt að án Carrey og Daniels getur þetta ekki gengið upp.
Farrelly-bræðurnir Bobby og Peter kynntu fábjánanna til leiks í Dumb & Dumber árið 1994 og eru nú loksins, rétt eins og leikararnir tilbúnir til þess að endurtaka leikinn. „Þetta er klárlega eitthvað sem okkur hefur langað til að gera lengi,“ segir Bobby Farrelly. „Okkur hefur alltaf langað til að ná upprunalegu strákunum, Jim Carrey og Jeff Daniels, saman á ný og athuga hvað þeir eru að bralla. Nú eru næstum tuttugu ár liðin frá því við gerðum fyrstu myndina og strákarnir skemmtu sér svo vel þá og eru nú á þeim stað á ferli sínum að þeir eru til í að endurtaka leikinn. Við munum gera þessa mynd.“
Og Bobby er meira að segja fáanlegur til þess að segja aðeins frá því við hverju megi búast í Dumb and Dumber To. „Sagan snýst um þá staðreynd að annar þeirra gæti hafa getið barn. Þeir vilja svo fara af stað og leita að barninu þar sem sá þeirra sem á barnið er nýrnaveikur og langar að biðja barnið um að gefa sér annað nýrað sitt.“
Farelly vill byrja tökur í árslok og stefna á frumsýningu haustið 2013.
Þórarinn Þórarinsson |
Nýjast
|