Samkvæmt fréttum frá Hollywood er breski leikarinn Hugh Laurie, sem hefur heillað Bandaríkjamenn undanfarin ár í hlutverki dr. Gregory House, hættur við að leika aðalskúrk endurgerðarinnar af Robocop. MGM er sagt í viðræðum við þröngan hóp leikara um að fylla skarð Laurie og Clive Owen er þar á meðal.
Náist samningar við Owen tekur hann við hlutverki hins illa forstjóra Omni Corp, fyrirtækisins sem breytir helsærða lögreglumanninum Murphy í Robocop.