Eðalleikkonan og heiðurskonan Joanne Woodward, ekkja Pauls Newman, ætlar að framleiða kvikmyndina Lucky Them en myndin var gæluverkefni Newmans heitins áður en hann lést árið 2008 eftir langvarandi veikindi. Woodward er talin ætla taka sér lítið hlutverk í myndinni en hún lék síðast í HBO-smáseríunni Empire Falls árið 2005 á móti Newman.
Newman rétti handritshöfundunum hjálparhönd með athugasemdum meðan handritið var í vinnslu og lofaði gestahlutverki í myndinni. Woodward vissi að Newman líkaði verkefnið svo að hún ákvað að leggja lóð sín á vogarskálarnar með því að ganga til liðs við framleiðendurnar.
Lucky Them segir frá blaðamanni á fertugsaldri sem starfar á rokkblaði og er leita að fyrrverandi kærasta sínum. Helstu leikarar verða Óskarsverðlaunahafinn Marisa Tomei, Thomas Haden Church og Allison Janney.
Tökur hefjast í mars.
Engin ummæli hafa verið skráð