Sá ágæti leikari John Leguizamo hellir sér fljótlega á kaf í bandaríska útgáfu af breskum gamanþáttunum Only Fools And Horses þar sem hann mun reyna að feta í fótspor David Jason sem lék Del Boy eftirminnilega í gömlu þáttunum. Íslenskir sjónvarpsáhorfendur þekkja Jason hins vegar líklega best sem hinn geðstirða en trausta rannsóknarlögreglumann Frost.
Áður en að þessu kemur mun hann skjóta upp kollinum í ofurhetjugríninu Kick-Ass 2. Þar leikur hann Javier, lífvörð hins unga Red Mist sem á sér draum um að verða aðal illmennið í rugluðum hetjuheimi nördanna Kick-Ass og Hit-Girl. Tökur á Kick-Ass 2 hefjast í Toronto í næsta mánuði.
Leguizamo verður einnig með í The Counselor, næstu mynd Ridley Scott sem Svarthöfði hefur ítrekað flutt fréttir af. Þar mun Leguizamo fara með hlutverk dópsala sem er neðarlega í fæðukeðjunni en ætla má að komist í samband við lögmanninn sem Michael Fassbender leikur þegar sá ætlar að reyna fyrir sér í fíkniefnaviðskiptum.
Scott hefur þegar smalað saman þéttum hópi leikara fyrir The Counsellor og Leguizamo gengur þar til liðs við þungavigtarfólkið Brad Pitt, Cameron Diaz, Penelope Cruz, Javier Bardem og Fassbender.