Leikstjórinn Spike Lee hefur fundið leikara í hlutverk illmennisins fyrir endurgerð sína á hinni mögnðu og ofbeldisfullu Oldboy frá árinu 2003. Þessi suður-kóreska hasarmynd sagði frá lánlausum manni sem haldið var í stofufangelsi af óþekktum kvalara í fimmtán ár áður en hann fékk frelsið sem hann notaði strax til þess að leita hefnda.
Josh Brolin fer með aðalhlutverkið í endurgerð Lees sem hefur nú ráðið Sharlto Copley (District 9, The A-Team) í hlutverk illmennisins sem leggur sig fram um að rústa lífi og tilveru Brolins. Þá hefur orðrómurinn um að Elizabeth Olsen (Martha Marcy May Marlene) muni leika aðal kvenhlutverkið verið staðfestur. Olsen leikur félagsráðgjafa sem aðstoðar Brolin við að rannsaka fortíð sína.
Lesið umfjöllun Svarthöfða um Oldboy hér.