Í kjölfar vinsælda The Avengers og þeirra ofurhetja sem fylla þann flokk er varla þverfótandi fyrir ofurhetjumyndum í Hollywood og þeim fjölgar með hverjum degi. Nú hefur 20th Century Fox fengið leikstjórann Josh Trank, sem kom skemmtilega á óvart með Chronicle, til þess að koma Fantastic Four-myndabálknum aftur í gang.
Trank hefur verið ansi eftirsóttur eftir vinsældir Chronicle, þar sem hann þeytti frumraun sína sem leikstjóri, og þykir hann ágætis val á leikstjóra fyrir fjölbreyttan heim Fantastic Four-ofurhetjanna.
Marvel leigði 20th Century Fox kvikmyndaréttinn á fjórmenningunum fyrir tveimur áratugum og Fox framleiddi tvær Fantastic Four-myndir á árunum 2005-2007. Þótt þær hafi ekki verið neitt sérlega vel heppnaðar skiluðu þær ágætis upphæð í kassann. Þannig að nú er bara að vona að þeir hjá Fox hafi vit á að hafa Marvel með í ráðum þar sem það er ljóst að á þeim bænum vita menn hvað þeir eru að gera eins og The Avengers, Thor, Iron Man og Captain America bera skýrt vitni um.