Kvikmyndagerðamaðurinn Jamie Benning vakti fyrst athygli á verkum sínum þegar hann skapaði svokallaðar sjónlýsingar (e. visual commentary) fyrir Star Wars-myndirnar. Benning ákvað að ganga næst í heimildamynd um gerð meistaraverksins Raiders of the Lost Ark. Eftir 10 mánaða þrotlausa vinnu hefur Benning frumsýnt Raiding of the Lost Ark á veraldarvefnum og fer ekkert á milli mála að hér er á ferðinni gríðarlega umfangsmikil og vönduð heimildamynd.
Við gerð Raiding of the Lost Ark studdist Benning við gömul viðtöl við Harrison Ford, Steven Spielberg, George Lucas og aðra. Hann rannsakaði vinnsluútgáfur af handriti myndarinnar, gramsaði í gömlu kynningarefni og sótti jafnvel efni til starfsmanna framleiðslunnar og aðstandenda þeirra.
Heimildamyndina má sjá hér fyrir neðan en hún er 143 mínútur á lengd og hverrar mínútur virði.
Engin ummæli hafa verið skráð