Óskarshafinn Liam Neeson hefur tekið að sér aðalhlutverkið í spennumyndinni A Walk Among the Tombstones eftir samnefndri bók Lawrence Block.
Scott Frank leikstýrir og skrifar handritið en hann skrifaði Minority Report og Out of Sight. Hann leikstýrði áður hinni ágætu The Lookout. Myndin segir frá fyrrverandi lögreglumanni og alkóhólista sem lentir upp á kant við eiturlyfjabaróna, leigumorðingja og AA-meðlimi.
Harrison Ford gerði sig líklegan til þess að leika í myndinni fyrir tveimur árum en gaf hlutverkið frá sér þar sem honum fannst hann eiga lítið sameiginlegt með aðalpersónunni. Svarthöfði veltir fyrir sér hversu mikið Ford telur sig eiga sameiginlegt með til dæmis Han Solo, Rick Deckard og kafbátaforingjanum Alexei Vostrikov og þá um leið hvort Ford hafi gleymt því hvað leikur gengur út á.