Mel Gibson ætlar enn í víking

2. febrúar '12 06:51 Mel Gibson ætlar enn í víking

Víkingamynd Mel Gibsons er ekki dauð úr öllum æðum ef marka má fréttir úr draumasmiðjunni. Gibson tilkynnti fyrir nokkrum árum að hann væri með epíska víkingamynd á teikniborðinu og að hún yrði eins raunveruleg og hugsast gæti og þannig áþekk Apocalypto með tilheyrandi blóðsúthellingum, nekt, hrottaskap og á fornmáli. Ísland er vitaskuld ákaflega hentugur tökustaður fyrir víkingamynd og Gibson kom á sínum tíma við hérna, skoðaði tökustaði og spilaði golf.

Staðfest er að Óskarsverðlaunahafinn Randall Wallace, handritshöfundur Braveheart, hafi skilað inn handriti og þar áður hafi Óskarsverðlaunahafinn William Monahan verið með puttana í handritasvinnunni. Orðrómur um að Leonardo DiCaprio myndi fara með aðalhlutverkið komst á kreik fyrir margt löngu en ekki liggur ljóst fyrir hvort það standi ennþá til.

Til gamans má geta þess að Baltasar Kormákur er einnig með víkingamynd í vinnslu, sem ber nafnið Vikingr, og stendur til að hún verði tekin upp hér heima og framleidd af Working Title.

Vignir Jón Vignisson

Engin ummæli hafa verið skráð

Svarthöfði 2011 - Allur réttur áskilinn | svarthofdi (hjá) svarthofdi.is | Um Svarthöfða