Mel Gibson horfir til VOD dreifingar1. febrúar '12 12:40
Nýjasta kvikmynd Mel Gibsons, Get the Gringo, verður ekki sýnd í kvikmyndahúsum vestanhafs heldur verður hún frumsýnd í „voddinu" eða VOD (e. Video-on-demand) þann 1. maí. Myndin verður fáanleg hjá DirecTV og á verður leigan einungis 10.99 dalir en almennt verð á bíómiða vestanhafs er í kringum 8-12 dali. DirecTV er með 20 milljónir áskrifenda þannig að þeir sem eru líklegir til að skella sér á myndina sem hét upphaflega How I Spent My Summer Vacation eru býsna margir.
Bílstjóri á flótta undan landamæraeftirlitinu í Mexíkó er handsamaður með lík í aftursætinu. Hann er í kjölfarið dæmdur og settur í fangelsi þar sem hann kynnist 10 ára dreng sem kennir honum á lífið innan veggjanna. Leikstjóri myndarinnar er Adrian Grunberg en hann starfaði áður sem aðstoðarleikstjóri á Gibson-myndinni Apocalypto. Gibson fer með aðalhlutverkið, skrifar, framleiðir og dreifir myndinni um allan heim. Myndin verður frumsýnd í kvikmyndahúsum víða í Evrópu undir nafninu How I Spent My Summer Vacation.
Vignir Jón Vignisson |
Nýjast
|
Engin ummæli hafa verið skráð