MGM vill lögbann á Raging Bull II4. júlí '12 10:37
Eins og Svarthöfði hefur þegar greint frá stendur taka upp framhald af hnefaleikasnilld Martins Scorsese, Raging Bull, í sumar. MGM-kvikmyndaverið er hins vegar á sama máli og væntanlega flestir aðdáendur myndar Scorsese og kærir sig alls ekkert um að Raging Bull II verði að veruleika. Fyrirtækið hefur stefnt hinum 91 árs gamla fyrrum boxara og aðalpersónu Raging Bull, Jake LaMotta og framleiðendum nýju myndarinnar, með það fyrir augum að koma í veg fyrir gerð myndarinnar og fá lögbann á hana þannig að hún muni aldrei koma fyrir augu almennings.
Handrit Raging Bull II er unnið upp úr bók sem LaMotta skrifaði árið 1986 í kjölfar Raging Bull. en samkvæmt stefnu MGM á hendur LaMotta hafði hann engan rétt til að selja framleiðendum Raging Bull II kvikmyndaréttinn á bókinni án þess að virða fyrst forkaupsrétt MGM. Þá eru allir aðstandendur Raging Bull II sakaðir um að bendla nýju myndina við óskarsverðlaunamynd Scorsese frá 1980 en slíkt tal sé fallið til þess að kasta rýrð á Raging Bull og sverta minninguna um þá mynd. Þórarinn Þórarinsson |
Nýjast
|