Michael Clarke Duncan látinn4. september '12 09:35
Leikarinn tröllvaxni Michael Clarke Duncan lést í Los Angeles í gær. Hann fékk hjartaáfall í júlí og náði sér aldrei að fullu. Hann lést á sjúkrahúsi í Los Angeles þar sem hann hafði legið frá því að hann fékk áfallið. Duncan var 54 ára og verður sjálfsagt lengst minnst fyrir frábæra frammistöðu sem fanginn John Coffey í The Green Mile. Þar lék hann á móti Tom Hanks undir stjórn Franks Darabonts og var tilnefndur til Óskarsverðlauna fyrir frammistöðu sína árið 1999.
Þegar Duncan var á þrítugsaldri vann hann við skurðgröft á daginn og sem dyravörður á kvöldin og gerði þó nokkuð að því að leika dyraverði í upphafi feril síns. Fyrsta alvöru hlutverk sitt fékk hann í Armageddon þar sem hann lék með Bruce Willis og fleiri köppum. Með Willis og Duncan tókst góð vinátta og þeir léku saman í fjórum myndum. Og Willis benti Frank Darabont á Duncan sem rétta manninn til þess að leika John Coffey.
Tvær myndir með Michael Clarke Duncan bíða frumsýningar, hnefaleikamyndin The Challenger eftir Kent Moran og Robert Townsend-myndin In the Hive.
Duncan lék á móti Dwayne „The Rock“ Johnson í The Scorpion King og Johnson er einn þeirra sem hefur minnst Duncans á Twitter þar sem hann sagði: „Þegar eitthvað gerist segjum við alltaf að það gerist af ástæðu ... Michael Clarke Duncan 12/10/57 – 9/3/12 Ég mun sakna þín bróðir.“
Þórarinn Þórarinsson |
Nýjast
|