Michael Moore: Við erum ofbeldisfull þjóð

24. júlí '12 13:31 Michael Moore: Við erum ofbeldisfull þjóð

Heimildamyndagerðarmaðurinn Michael Moore, sem hlaut á sínum tíma Óskarsverðlaunin fyrir myndina Bowling for Columbine þar sem hann fjallaði um skotárás tveggja nemenda á skólafélaga sína og almennt um byssubrjálæði Bandaríkjamanna, hefur brugðist við skotárásinni á frumsýningu The Dark Knight Rises í Colorado á föstudaginn.

„Ég óttast að mannfræðingar og sagnfræðingar framtíðarinnar muni horfa til baka á okkur og einfaldlega segja að við höfum verið ofbeldisfull þjóð. Bæði heima og erlendis en að lokum hafi mennskan orðið ofan á og ofbeldið hafi tekið enda. En ekki fyrr en margir, margir aðrir hafa látið lífið og heimsbyggðin hafi fengið sig fullsadda af okkur,“ segir Moore.

Michael Bloomberg, borgarstjóri í New York, hefur einnig brugðist við skotárásinni og beinir spjótum sínum að Barack Obama, forseta, og ríkisstjóranum Mitt Romney sem stefnir á forsetaembættið. Bloomberg segir tíma til kominn að þessir tveir menn sem tali um að þeir vilji bæta heiminn horfist í augu við þann skelfilega vanda sem fólginn er í almennri byssueign og fari að tala hreint út um hvernig þeir ætli að bregðast við vandanum.

Þórarinn Þórarinsson

Svarthöfði 2011 - Allur réttur áskilinn | svarthofdi (hjá) svarthofdi.is | Um Svarthöfða