Morðóða brúðan Chucky snýr aftur, aftur

25. júní '12 12:12 Morðóða brúðan Chucky snýr aftur, aftur

Sjálfsagt finnst mörgum nóg komið og heldur verið að bera blóð í bakkafullt fljótið sem morðóða brúðan Chucky hefur skilið eftir sig síðan hún fór fyrst á kreik í Child´s Play árið 1988 en aðstandendur ófétisins eru þó hvergi bangnir og ætla að henda í að minnsta kosti eina mynd til viðbótar. Og það sem meira er, þeir ætla að hverfa aftur til myrkari daga Chucky en síðustu myndirnar um skoffínið hafa verið eitt alls herjar sprell. Síðan má svo aftur deila lengi um hvort Chucky hafi nokkurn tíma verið ógnvekjandi yfirleitt.

Leikarinn Brad Douriff, sem hefur talað fyrir Chucky í öllum myndunum hingað til, gaf til kynna í mars að uppi væru áform bæði um að endurgera Child´s Play og gera enn eina framhaldsmyndina og nú hefur fengist staðfest að Curse of Chucky verði að veruleika og sjálfsagt þar engan að undra að hún verður gefin út beint á DVD án viðkomu í kvikmyndahúsum.

Í Child´s Play tókst raðmorðingjanum og vúvú-kuklaranum Charles Lee „Chucky“ Ray að forða viðbjóðslegri sál sinni yfir í dúkku áður en lögreglumaður skaut hann til bana. Charles Lee kom sér síðan fyrir á heimili einstæðrar móður og gat engan veginn haldið aftur af eðlislægri drápslöngun sinni þótt hann sæti fastur í barnaleikfangi.

Einhverra hluta vegna þótti ástæða til þess að fylgja vitleysunni eftir með Child´s Play 2 árið 1990 og Child´s Play 3 ári síðar en mynda-bálkurinn tók svo nýja og enn sturlaðari stefnu árið 1998 þegar Ronnie Yu bauð upp á Bride of Chucky þar sem Chucky eignaðist kærustu sem Jennifer Tilly gæddi lífi. Dellan hélt áfram 2004 með Seed of Chucky og greinilegt er að ekki sér enn fyrir endan á Chucky-ruglinu.

Tökur á Curse of Chucky byrja í september og þar mun brjálað brúðan herja á stórfjölskyldu sem er í upplausn og kemur saman vegna jarðarfarar.

Þórarinn Þórarinsson

Svarthöfði 2011 - Allur réttur áskilinn | svarthofdi (hjá) svarthofdi.is | Um Svarthöfða