Neil Marshall siglir með Drakúla til Englands

26. júní '12 12:24 Neil Marshall siglir með Drakúla til Englands

Leikstjórinn Neil Marshall hefur sýnt og sannað með Dog Soldiers og The Descent að hryllingur steinliggur í höndum hans og ekki er hann síðri þegar kemur að limlestingum og að búta fólk í sundur með hinum ýmsu vopnum eins og Doomsday og Centurion bera gott vitni, að ógleymdum hinum magnaða Blackwater-þætti í nýjustu Game of Thrones- seríunni en Marshall stökk snarlega til þegar honum bauðst að leikstýra þætti í þeim vinsæla flokki.

Næsta verkefni hans, The Last Voyage Of The Demeter, er vægast sagt áhugavert en hefur þó verið stefnulaust á reki um árabil þar til Marshall tók við því. Hann er byrjaður að undirbúa tökur á myndinni sem segir frá bölvaðri ferð skipsins Demeter sem flutti banvænan farm í líkkistu, sjálfan Drakúla greifa, frá Transylvaníu til Englands.

Ferð Demeter eru gerð skil í skáldsögu Brams Stoker um Drakúla en þegar skipið rekur að Englandsströndum er ekki sálu að finna um borð að skipstjóranum undanskildum sem er steindauður en bundinn uppistandandi við stýrið.

Marshall segir að ekki verði um Drakúla-mynd sem slíka að ræða enda hafi skipverjar aldrei áttað sig á því í bókinni við hvað þeir voru að eiga. Hann sjái því  The Last Voyage Of The Demeter fyrir sér sem einhvers konar Alien um borð í gömlu og fúnu seglskipi.

Allt útlit er fyrir að Marshall fái Viggo Mortensen í aðalhlutverkið en annars er lítið vitað um leikaraval annað en að Ben Kingsley hefur um tíma verið orðaður við hlutverk skipstjórans þannig að hans bíða vart góð né fögur örlög. Þá var til skamms tíma rætt um Noomi Rapace í hlutverk laumufarþega um borð en ekkert hefur fengist staðfest í þeim efnum þannig að hún hefur ef til vill látið skynsemina ráða og stokkið frá borði.
 

Þórarinn Þórarinsson

Svarthöfði 2011 - Allur réttur áskilinn | svarthofdi (hjá) svarthofdi.is | Um Svarthöfða