Tökur eru hafnar á Disney-myndinni Maleficent sem eins og nafnið bendir til fjallar um eitt allra flottasta illmenni Disney-teiknimyndanna, nornina Maleficent sem sá til þess að Þyrnirós stakk sig á snældu og svaf í hundrað ár.
Angelina Jolie fer með titilhlutverkið og fyrsta myndin af henni sem Maleficent hefur verið gerð opinber og lofar vægast sagt góðu. Angelina minnir um margt á fyrirmyndina úr teiknimyndinni Sleeping Beauty frá 1959 og banvænn þokki hornóttar nornarinnar er svo sannarlega til staðar.
Angelina segir Maleficent vera ráðgátu í nýju myndinni og hún sé miklu meira en aðeins dæmigert illkvendi sem breytir sér í dreka. Nú verði saga Maleficent sögð og skýrt hvers vegna hún er eins og hún er þegar hún birtist gegnsýrð af illsku í Sleeping Beauty. „Þótt hún verji sig og geti verið grimm þá þýðir það ekki að hún geti ekki átt sér mýkri hliðar,“ sagði Angelina í viðtali við EW um Maleficent.