Nýju Dallas-þættirnir fara vel af stað15. júní '12 12:35
Frá því sjónvarpsstöðin TNT lét þau boð út ganga að til stæði að endurvekja Dallas og tefla fram á ný þeim J.R. Ewing, Bobby bróður hans og hinni dáðu Sue Ellen hefur frumsýningar fyrsta þáttarins verið beðið með töluverðri eftirvæntingu. Stóra stundin rann loks upp í Bandaríkjunum á miðvikudaginn og í ljósi gríðarlegra vinsælda Dallas-þáttanna á níunda áratug síðustu aldar kemur ekki á óvart að nýji þátturinn fékk stórgott áhorf. 6.863 milljónir áhorfenda fylgdust með upprisu J.R. ytra, sem hlýtur að teljast býsna gott þar sem hinn goðsagnarkenndi lokaþáttur þriðju þáttaraðarinnar, „Hver skaut J.R.?“ er talinn hafa laðað 83.000.000 manns að skjánum á sínum tíma sem er sögulegur fjöldi. Gagnrýnendur eru þó síður en svo á eitt sáttir um gæði nýju þáttanna. USA Today segir nýju þættina fullkomlega óþarfa en þó er Larry Hagman hrósað fyrir frammistöðu sína í hlutverki hins aldna J.R. og sú ákvörðun að draga fram lykilpersónur úr gömlu þáttunum er sögð sú eina gáfulega sem aðstandendur nýja Dallasins hafi tekið. Hagman er sagður alltaf hafa verið í eigin sérflokki hvað Dallas varðar og gagnrýnandi blaðsins harmar að hann skuli eiga endurkomu í jafn vandræðalegu verkefni og þessu.
Hjá New York Post er því spáð að gamalkunnug svikráð og undirferli muni þó að lokum vinna þáttunum hollustu áhorfenda þótt allt bendi til þess að nýju þættirnir séu enn „fáránlegri“ en þeir gömlu og gangi svo langt í flippinu að það jaðri við geðveiki. Gamlir aðdáendur eru miklum mun jákvæðari en gagnrýnendur og sumir réðu sér vart fyrir kæti yfir þessari stund sem margir þeirra hafa beðið í rúm tuttugu ár. John Ross, sonur Sue Ellenar og J.R. er orðinn fullorðinn maður og hyggst sanna sig með því að byggja upp sitt eigið olíveldi, eins og afi hans forðum. Christopher, ættleiddur sonur Bobbys og Pamelu, er á svipuðu reiki og frændi sinn en hefur auðvitað allt aðrar áherslur og einbeitir sér að umhverfisvænni orku. Umhverfisvæn orka og ekki síður Christopher er vitaskuld eitur í beinum J.R. sem barðist harkalega gegn því á árum áður að Christopher, sem ekki er hreinræktaður Ewing, fengi hluta í olíufélagi fjölskyldunnar.
J.R. hefur að sjálfsögðu engu gleymt og skarar enn eld að eigin köku með bolabrögðum og stendur að baki syni sínum. Bobby, sem erfði milda taug móður sinnar, hennar Ellýar, hefur tekið sæti móður sinnar sem húsbóndi á ættaróðalinu, Southfork, og stendur sem slíkur í vegi fyrir J.R. og syni sem vilja ólmir bora eftir olíu á landareigninni. Þórarinn Þórarinsson |
Nýjast
|