Myndasöguverslanir víða um heim halda Ókeypis myndasögudaginn hátíðlegan fyrsta laugardag í maí ár hvert. Uppáhaldsverslun Svarthöfða á Íslandi, Nexus, tekur nú þátt í gleðinni ellefta árið í röð og Svarthöfði hvetur lesendur sína og alla alvöru nörda sem vetlingi geta valdið til þess að drífa sig í hið huggulega Nexusport við Hverfisgötu og næla sér í nokkur myndasögublöð sem eru sérprentuð í tilefni dagsins.
Myndasögubransinn og bíóheimurinn hafa löngum tengst nánum böndum sem gera ekkert nema styrkjast eins og þetta bíóár ber svo glögglega með sér en nú þegar höfum við vengið Marvel-veisluna The Avengers og Batman og Spiderman eru handan við hornið.
Nexusliðið byrjar að útdeila ókeypis myndasögum klukkan 13 í dag þannig að það er um að gera að drífa sig af stað þar sem búast má við hressilegri Bauhaus-biðröð sem er að vísu mun skemmtilegri og flottari en sú sem boðið var upp á við Úlfarsfell í morgun þar sem í Nexus er alltaf líf og fjör.
Ókeypis myndasögurnar eru fyrir fólk á öllum aldri og alltaf er nóg af einhverju fyrir yngstu krakkana og vondir foreldrar ættu að hafa í huga að öruggasta leiðin til þess að ala upp almennilegan einstakling er að gera hann að nörd sem allra fyrst. Hugleikjafélagið kynnir spil á staðnum og og málningakennslan verður á sínum stað. Allir af stað og góða skemmtun!
Megi Mátturinn vera með ykkur!