Al Pacino hefur komið víða við á löngum ferli og leikið margan glæpamanninn, allt frá Michael Corleone til hins útúrkókaða Tony Montana í Scarface. Hann hefur hins vegar ekki enn látið til sín taka í teiknimynd en nú verður breyting þar á þar sem hann hefur tekið að sér að tala fyrir skúrkinn í Despicable Me eða Aulinn ég.
Enn er allt á huldu um hlutverk Pacinos fyrir utan að hann verður höfuðandstæðingur Gru sem Steve Carell mun tala fyrir rétt eins og í fyrri myndinni sem gerði það gott í bíó árið 2010.
Despicable Me 2 kemur í bíó sumarið 2013.
Engin ummæli hafa verið skráð