Payne með feðga á ferðalagi í Nebraska

8. ágúst '12 11:40 Payne með feðga á ferðalagi í Nebraska

Leikstjórinn og gullmolinn Alexander Payne er um þessar mundir að undirbúa sína næstu kvikmynd sem hefur fengið nafnið Nebraska. Payne leikstýrði síðast The Descendants og þar áður Sideways. Payne hlaut óskarsverðlaunin í febrúar fyrir handrit sitt að The Descendants sem byggði á áður útgefnu efni.

Nebraska segir frá feðgum sem leggja í ferð frá Montana til Nebraska í þeim tilgangi að leysa út milljón dala lottóvinning. Sonurinn trúir ekki á ágæti vinningsmiðans en slær til þar sem ferðin milli ríkjanna ætti í það minnsta að gefa honum tækifæri til þess að eyða tíma með þeim gamla.

Will Forte og Bruce Dern leika feðgana en Forte er þekktastur fyrir frammistöðu sína í Saturday Night Live-þáttunum og kvikmyndinni MacGruber. Lítið hefur farið fyrir gamla brýninu Dern síðastliðin ár en hann hefur helst látið til sín taka í þáttunum Big Love á kapalstöðinni HBO. Þá mun hann næst láta sjá sig í Django Unchained.

Bob Nelson og Phil Johnston skrifa handrit myndarinnar en Johnston skrifaði Disney-myndina Wreck-It Ralph sem er væntanleg á árinu. Payne lýsir myndinni sem lítilli gamanmynd og það ætti að verða áhugavert að sjá Forte tækla gamandrama.

Nebraska er væntanleg í kvikmyndahús á næsta ári.

Vignir Jón Vignisson

Svarthöfði 2011 - Allur réttur áskilinn | svarthofdi (hjá) svarthofdi.is | Um Svarthöfða