Hollywood Reporter greinir frá því að leikstjórinn Ridley Scott vilji endilega gera framhald að Alien-forleik sínum Prometheus sem sló í gegn í sumar. Þótt handrit myndarinnar hafi verið hriplekt og ansi mörg göt í söguþræðinum hafa gagnrýnendur almennt tekið Prometehus mjög vel í sumar og sama má segja um áhorfendur þar sem myndin hefur skilað rúmum 300 milljón dollara í kassann.
Meira þarf nú ekki til þess að fá grænt ljós á framhald og Scott vill ólmur hverfa aftur í Alien-heiminn sem hann skóp fyrir þrjátíu árum um leið og hann stimplaði sig varanlega inn sem frábær leikstjóri með The Alien árið 1979.
Prometheus endaði þannig að hæglega er hægt að spinna söguna áfram og Noomi Rapace og Michael Fassbender geta endurtekið rullur sínar þar sem persónur þeirra komust nokkurn veginn heilar frá hildarleiknum í Prometheus.
Emma Watts hjá Twentieth Century Fox staðfestir við Hollywood Reporter að Scott hafi vægast sagt mikinn áhuga á framhaldi. „Ridley er ótrúlega spenntur fyrir myndinni en við verðum að gera þetta rétt. Það þýðir ekkert að gera þetta með hraði.“