Raging Bull II breytist í Tuddann frá Bronx

3. ágúst '12 11:39 Raging Bull II breytist í Tuddann frá Bronx

Aðstandendur hins umdeilda framhalds af snilldarmynd Martins Scorsese, Raging Bull frá árinu 1980, hafa látið undan kröfu MGM og hafa breytt titli nýju myndarinnar úr Raging Bull II í The Bronx Bull. Þá fallast þeir á að slíta á allar tengingar við Raging Bull. Að þessum skilyrðum uppfylltum fellst MGM á að falla frá lögbannskröfu á gerð og sýningu myndarinnar.

The Bronx Bull mun vitaskuld eftir sem áður segja sögu hnefaleikarans Jake LaMotta eftir atburði Raging Bull enda byggir handrit framhaldsins á bók sem LaMotta skrifaði eftir að Raging Bull var frumsýnd.

Robert De Niro lék LaMotta með ótrúlegum tilþrifum undir stjórn Scorsese en í nýju myndinni fer William Forsythe með hlutverk LaMotta á efri árum og Mojean Aria leikur boxarann ungan.

Meistari Martin Scorsese kemur vitaskuld hvergi nærri verkefninu og segir myndina tilgangslausa; „Ég tel að við höfum sagt allt sem þurfti að segja á sínum tíma.“
 

Þórarinn Þórarinsson

Svarthöfði 2011 - Allur réttur áskilinn | svarthofdi (hjá) svarthofdi.is | Um Svarthöfða