Salander lætur bíða eftir sér

28. ágúst '12 11:39 Salander lætur bíða eftir sér

Endurgerð Davids Fincher á sænsku spennumyndinni Karlar sem hata konur sem aftur byggði á samnefndri spennusögu Stiegs Larsson olli nokkrum vonbrigðum þrátt fyrir ágæta spretti og aðsóknin var ekki í samræmi við væntingar.

Hollywood hefur þó ekki snúið baki við þeim Mikael Blomkvist og Lisbeth Salander og þótt lítið hafi frést af framhaldinu The Girl Who Played With Fire er stefnt að því að ljúka við þá mynd og frumsýna í fyrsta lagi árið 2014. Samkvæmt heimildum Entertainment Weekly er Steven Zaillian að skrifa handritið og á meðan er allt annað í biðstöðu. Ekki er búið að ganga frá ráðningu leikara, leit að tökustöðum er ekki byrjuð og enginn leikstjóri hefur verið fenginn að verkefninu.

Fincher er efstur á óskalista Sony en alls óvíst er hvort hann kæri sig yfirleitt um að halda áfram að spinna þríleik Larssons. Rooney Mara og Daniel Craig munu hins vegar endurtaka rullur sínar sem Blomkvist og Salander verði til þess ætlast þannig að hættan á því að skipt verði um aðalleikara á miðri leið er lítil.

Þórarinn Þórarinsson

Svarthöfði 2011 - Allur réttur áskilinn | svarthofdi (hjá) svarthofdi.is | Um Svarthöfða